|
|
23.01.2007 11:40:28 / hildur_b
Jæja ég hef ákveðið að taka aftur upp blaðið og blýantinn..
hehe.. neihh eiginlega lyklaborðið og skjáinn!! Úff afsakið að ég
sé ekki búin að blogga neitt en ég skal bæta úr því!
Get því miður ekki skrifað mikið núna þar sem ég er bara í
skólanum núna en ýmislegt er hægt að segja frá! Þar ber einna hæst
kannski það að ég og Elías erum búin að trúlofa okkar og ætlum að
gifta okkur næstu jól Það er svolítið magnað og brjálað en já..
þannig er það nú!
Svo er ég bara á fullu í skólanum núna, er komin í 5. bekk í emm
err og fer vonandi að klára þetta rusl bráðum.. Skólinn er sem
sagt ekki alveg í uppáhaldi hjá mér núna.. Svo er ég vinna í
barnafatabúð, Du pareil au meme á Laugarveginum, er að æfa dans hjá
Birnu Björns og bara alveg nóg að gera..
Ohh.. ég þoli ekki hvað ég er léleg í að skipuleggja tímann
minn.. Vildi að ég gæti gert svo miklu miklu meira við tímann að
því að hann er svo dýrmætur.. Ótrúlega léleg í að forgangsraða
lífinu og er stundum svo alltof vitlaus.. langar svo að geta breytt
því aðeins..
Svona er lífið, það gengur og það gengur. Eins og tíminn. Er
kannski tíminn lífið? Er ekki lífið nákvæmlega það sem við ákveðum
að gera við tímann sem við höfum?!? Við tökum ákvarðanir, hvað við
gerum, hverja við hittum og hversu mikið gott við látum leiða af
okkur. Allt skiptir þetta máli en það er aldrei of seint að snúa
við blaðinu. Það er aldrei of seint að taka eftir því sem mikilvægt
er og beita kröftum sínum í það, í stað þess að fljóta um í
reiðisleysi eftir lífsins ólgusjó!
Guð blessi ykkur, fallega fólk
Kveðja Hildur tímaálfur
»
17.08.2006 14:11:09 / hildur_b
Haehae allir saman, ef thad er tha e-r ad lesa thetta rugl! Ja
eins og kannski flestir vita sem mig thekkja tha er eg stodd nuna i
Kenyu i Afriku, nanar tiltekid a luxus stadnum mombasa!! Thetta er
sko ljufur stedur med strond, hoteli med ollu og bara mega mega
chill!! E-r frettu af veikindum minum en eg fekk sma sykingu her i
Kenyu og thurfti ad leggjast inn a spitala en sem betur fer var
thad ekki alvarlegt! Nu er eg oll ad koma til og allt i godu! Verd
ad hlaupa, hlakka til ad komast heim aftur a manudaginn!!
Elska ykkur oll
Hilli goes to Africa!
»
19.05.2006 16:26:32 / hildur_b
Nú held ég að það sé kominn tími á smá blogg!!
Í dag er föstudagurinn 19. maí og þannig er mál með vexti að ÉG
ER Í FRÍI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! JIBBÍÍÍÍÍ!!
Já ég var s.s. að klára seinasta prófið mitt í
gær, eftir að gefið blóð, svita og tár í próftörn sem hefur staðið
yfir í rúmar 3 vikur og innihélt 12 stk. takk fyrir! En alltaf er
það jafn yndislegt að hafa klárað, tilfinningin er svo góð að hún
er nánast ekki af þessum heimi! Núna er bara að bíða fram á
miðvikudag að ná í einkunnirnar og vonandi fer allt vel þar
líka!
Í morgun vaknaði ég við það að sólargeislarnir
reyndu sitt besta við að skríða inn umm gluggann minn, fuglarnir
sungu sitt blíðasta og ekki vottur af löngun til að líta í eina
skólabók eða svo! Sem sagt, fullkomið í alla staði Svo fékk ég
mér að borða, settist fyrir framan skjáinn og horfði á Fareinheit
9/11. Þetta er mynd eftir Micheal Moore um Bush, 11.sept og
innrásina inn í Írak og allt ruglið í kringum það. Og treystu mér,
það er rugl. Ég verð að viðurkenna að ég var aðeins búin að gleyma
mér í mínu litla, dekraða lífi og það var gott að vera sleginn smá
í andlitið. Ég hef eiginlega engin orð, stríð er hryllingur,
óréttanlegt með öllu í mínum augum og ég tek svo sannarlega undir
orð George Orwell:"Það eru engir sigurvegarar í stríði." Ísland
kemur fram í þessari mynd, gaman að segja frá því, sem lítil þjóð
lengst í burtu, sem ákvað að taka þátt í innrásinni! Auðvitað var
mikið grín gert að okkur, hvað getum við í ósköpunum lagt til
málanna í stríði, við eigum ekki einu sinni her! Þetta er
náttúrulega ekkert annað en einn stór brandari!!!
Fátækt.. haldiði að það komi e-n tímann sá dagur
það sem allir verði jafnir, að það verði ekki svona mikill munur á
lífsgæðum fólks, að það verði alltaf einhverjir sem líða skort og
einhverjir sem eiga allt og meira til?!?!? Ég vildi svo innilega
óska þess að það væru ekki til neinir peningar í þessum heimi! Fólk
er alltaf að rífast um þá, vilja meira og meira og meira og meira
og meira..Peningar setja okkur í mismunandi hópa, flokka okkur og
eru, að margra mati, okkar eini aðgöngumiði að hamingju! Ég er
engin undantekning, ég vil meira, ég vil vinnu sem gefur mér
peninga, ég vil geta leyft mér ýmislegt í lífinu o.s.frv. Ég skil
ekki, ég veit ekki alveg hvað er rétt að gera.. Af hverju er
maðurinn svona eigingjarn oft.. ég veit að ég er það, alltof mikið!
Úff ég skil ekki...
Allavega í aðeins skemmtilegri sálma.. Núna er
mikið að gerast, maður kominn í frí og lífið brosir við manni Á
morgun er Jóhanna sæta að fara útskrifast og læti, þetta fólk er
verða svo gamalt e-ð..:/ Það verður boð og læti og auðvitað lætur
maður sjá sig Svo er júróvisjón um kvöldið og hún Silvía okkar
ekki með.. Það er pínu fúlt en samt er mér nok sama! Á mánudaginn
er það bara sumó sem mun nokkurn veginn endast fram á fimmtudag!
Svo eru Magga sæta og JK að útskrifast á föstudaginn, gaman,
gaman og mig minnir að Tinna sæta sé líka að fara útskrifast á
laugardaginn Allt að gerast mikið gaman! Svo eru það bara
sumarbúðirnar bráðum, það verður æðislegt en samt svolítið erfitt
að vera svona lengi í burtu frá öllu og öllum..:/ 2 brúðkaup í
sumar Ingunn og Gunnar (systir Elíasar) og svo Guðrún og Pétur
(frænka Elíasar). Það verður mjög gaman, hef bara farið í 1
brúðkaup um ævina þannig að það verður geggjað! Svo er það líklega
Kenýa, vil samt ekki lofa neinu en að öllum líkindum. Það er smá
vesen í kringum það en það skýrist von bráðar! Svo bara 5. bekkur í
MR, helmingurinn, vonandi, búinn. Þetta mjakast allt saman
Jæja svo er stóri bróðir búinn að eignast lítinn
engil, litla stelpu sem fæddist 23. apríl síðastliðinn! Hún er
yndislegust í alla stað, hún er svo ótrúlega falleg að ég á
ekki orð og hún er e-ð svo fullkomin!! Hún er með 10 putta,
10 tær og alles Ég er sko stoltasta frænka í öllum
heiminum. Hún var skírð, hérna heima, seinasta sunnudag og hún fékk
í leiðinni nafnið Embla Guðný! Ótrúlega fallegt og yndislegt!
Skírnin heppnaðist ótrúlega vel, fallegt veður og mamma og pabbi
frábær að halda handa þeim svona fallega skírn. Presturinn
heitir Sigrún og hún var líka frábær. Allt saman voðalega
fallegt og frábært.
Heldurðu að ég hafi ekki bara skellt mér í
Bláa Lónið í gær með Elíasi! Ég fékk í
afmælisgjöf gjafabréf í nudd þar og ákvað að skella mér eftir
erfið próf! Það var svo ótrúlega gott! Við ættum að vera duglegri
að nýta okkur þetta, alíslenskts og náttúrulegt! Yndislegt í
alla staði! Svo hélt hún Lára sæta upp á 18 ára afmælið sitt og þar
hitti maður slatta af gömlu Való-gellunum sem auðvitað var
mjög gaman Svo fórum við við til Perlu gellu og horfðum
reyndar á svolítíð ógeðslega mynd, Saw2. Ekki horfa á hana..
Úff jæja þá, þá er tími til kominn að gera
e-ð af viti, ekki hanga fyrir framan tölvuna á svona
fallegum degi sem Guð hefur gefið okkur! Guð er frábær og
yndislegur og allt þar á milli! Gleymum honum aldrei, hann gaf
okkur líf! Þið eruð yndisleg og falleg, ekki gleyma því!! Verið góð
við ykkur, farið í Blár Lónið og andið að ykkur ferskum andblæ af
nýjum degi sem okkur hefur verið gefinn!!
Kv. Hildur Bjé
»
24.04.2006 19:33:41 / hildur_b
Jæja.. þá er komin mánudagur enn og aftur.. Hehe.. nenni ekki að
skrifa e-ð með viti í þannig að ég ætla fá að skrifa e-ð
skemmtilegt ruglumsull!!
Já hemmi minn.. Hehe þess má einmitt geta að maður að nafni
Hemmi (eila Hermann Ingi Ragnarsson) lék einmitt í einkar
skemmtilegu leikriti um daginn sem gekk út á að hann væri með
pungsig.. Já aldrei mun ég upplifa það þannig að það er ekkert sem
ég þarf að hafa áhyggjur af!! En já hvað er uppi krakkar mínir..
próf að fara dembast yfir lýðinn.. Hann situr sveittur yfir
margflettuðum jarð 303 og Njálum og Eglum. Það er yyyynidslegt
nei nú laug ég og bið forláts! Eða afláts.. nei núna erum við í
ruglinu..
En vissuð þið að einu sinni voru seld svokölluð aflátsbréf sem
áttu að vera e-s konar syndaaflausn þ.a. ef þú keyptir það þá
myndir þú ekki fara til helvítis.. Hmm.. hljómar pínu einkennilega
en hvað um það.. það er búið..
Svo hélt ég að það væri komið sumar en viti menn.. þá koma
haglél! Hmm.. Á sumrin á ekki að koma haglél.. eða hvað?? Kannski
missti ég af einhverju!
Fór á skólamót í Vatnaskógi um páskana!! Það var mergjað! Mikið
og margt skemmtilegt brallað þar á bæ.. Alltaf mjög fróðlegt
að hanga með þessum kjúklingum sem eru b.t.w. frábær í alla
staði
Hmm.. veit ekki hvað skal segja.. heyrðu endilega ef
þú vilt koma e-u skemmtilegu á framfæri þá tjáið ykkur.. ég
hef 0% merkilegt að segja að svo stöddu!! Kannski kemur
ritandinn yfir mig von bráðar og þá verð ég kannski bara krýnd
næsta frú Laxness.. tja ég efa það nú!!
Hafið gott yndin mín, gangið hægt inn um gleðinnar dyr og munið
að gulur er skemmtilegri en brúnn!!
Lifið heil - hipphippphúrra!!
»
27.03.2006 20:33:45 / hildur_b
Jæja þá er enn ein vikan gengin í garð með öllu sínu fíneríi!
Helgin var svona lala.. Fór í netta Krung-fræðslu (f. Kenýu) á
föstudaginn sem átti að vera alveg til 22:00 en Ragnar ákvað að
vera góður við okkur og hleypti okkur snemma heim og við vorum búin
um sjö-leytið! Þá skunduðum við nokkur til hans Ragga og skemmtum
okkur vel saman í góðra vina hópi!! Við horfðum á mynd sem heitir
Date Movie.. svolítið í anda Not Another Teen Movie nema þarna var
verið að gera grín (oftast) af svona rómantískum gamanmyndum! Hún
var fyndin.. samt aðallega spes! En það var ágætt.. Sko.. svo átti
að vera geggjað dans workshop upp í Sporthúsi um helgina.. 2
magnaðir danskennarar áttu að koma kenna Sisco Gómez og Kimberly
Taylor.. þau eru snillingar!! Hafa kennt fólki eins og Britney,
Pink o.fl. Allavega mér var sagt frá þessu og mig langaði meira en
allt á þetta þannig að ég sló til og skráði mig!!! Allt í gúddí,
þurfti reyndar að vinna og fara í Krung á föstud en ég gat þá
skellt mér á laugardaginn og sunnudaginn! Nei, hvað haldiði
að gerist þá.. Elskulega vinnan hringdi í mig og tilkynnti mér að
ég þyrfti að vinna á laugard og sunnud, nákvæmlega á sama tíma og
dansinn átti að vera!!!!!!!!!!!!!!!!! 
Ég komst ekki í dansinn og þurfti að vinna.. Það var samt alveg
ágætt að vinna, fínt að fá smá pening og þetta með dansinn var of
gott til að geta staðist!! Ahh.. gott að losa sig við smá pirring!
Svo var strákafundur í KSS, það var mjög gaman!! Strákarnir stóðu
sig með einstakri prýði!! Margt skemmtilegt þar á ferð! Svo var
fótboltamót og við stelpurnar héldum uppi "heiðri" kvk og vorum með
eitt lið! Það fór, að sjálfsögðu, alveg á kostum! Guðlaug sæta var
án efa kona mótsins, fórnaði nefinu fyrir félagið!! Svo reyndar
endaði helgin vel þannig að ég er ágætlega sátt!
Náði auðvitað ekkert að læra alla helgina sem er ekkert rosalega
gott..:/ Mikið að gera í skólanum, mjög stutt í vorprófin og svona!
Ég ætla að taka mig pínu á núna..
KSS í gúddí.. ætla ekki að bjóða mig fram til að vera í stjórn
aftur! Margt sem kemur inn í það! Mér líst samt ótrúlega vel á þá
sem eru í framboði og ég treysti þeim öllum fyllilega til að takast
á við þetta mikla verk!!!! Miklar umræður líka á spjallinu okkar um
ýmislegt.. Ég hef mínar skoðanir á mörgu þarna, ætla samt að halda
þeim smá fyrir mig.. Hehe.. það er svo sannarlega e-ð nýtt!!!
Jæja nóg komið af rugli.. og kominn tími til fara ræða um e-ð af
viti!! Já það er margt sem flýgur í gegnum huga minn dag hvern,
margar spurningar!! Það er svo margt sem ég veit ekki, margt sem ég
held að ég viti en í raun er það bara rugl í mér. Eftir að pælt í
mörgu kemst ég bara að einni niðurstöðu.. vá hvað ég er lítil! Vá
hvað ég er ógisslega lítil í þessum heimi, ég veit svo takmarkað!
Margt sem ég sé ekki, veit ekki um! Og sem Íslendingur, dekraður og
ómeðvitaður um það sem er virkilega í gangi í þessum stóra heimi.
Eftir svona pælingar kemst ég ekki hjá því að finnast vera
óendanlega vanmáttug..
Það er samt eitt sem ég sé mjög vel.. það jafnast kannski ekkert á
við stríð, hungursneyð, ofbeldi og náttúruhamfarir.. en það er
eitt! Það er klámvæðingin sem er í gangi í dag.. hafiði tekið eftir
þessu?? Þetta er nefnilega alls staðar og þá er ég að meina alls
staðar! Í blöðum, tímaritum, sjónvarpi, tölvum, tónlist.. allt í
kringum okkur! Og þar sem þetta er alls staðar, þetta herjar á
okkur hvert sem við förum, þá erum við, allavega ég, farin að
slökkna á verðinum! Mér finnst það sérstaklega slæmt hvernig þetta
hefur áhrif á yngri kynslóðina! Með ákv. markarsetningu, til dæmis
á ýmsu tónlistarfólki, er verið að gera unga krakka, alltof unga
krakka, að kynverum! Allt niður í 8, 9 ára krakka! Halló, er það
ekki sjúkt??? Þetta eru börn, hvað varð um það að varðveita æskuna,
varðveita sakleysið og hinn yndislega barndóm?? Kannski er ég e-r
tepra eða gamaldags.. hehe.. það er hægt að segja margt um mig en
ég held að ég sé svo sannarlega ekki gamaldags og íhaldssöm!!! Ég
veit ekki.. En ég er allavega með áskorun til þín, kæri vinur (ef
að það er e-r sem les þetta:/) að vera gagnrýnin á samfélagið! Ekki
láta allt blekkja þig, bara af því að það virðist vera svo útbreytt
að það hlýtur að vera það rétta! Berðu virðingu fyrir þér og líkama
þínum, þú átt bara einn og þú ert svo undursamlega skapaður!
Guð er æði.. vildi að fleiri vissu það.. Ég þoli samt ekki hvað
ég gef honum lítinn tíma, það er svo óendanlega sorglegt..:/ Ég er
mikið að pæla í ýmsu í samb. við hann þessa dagana.. ætla samt
ekkert að fara nánar út í það.. En þið kannist pottþétt öll við að
efast.. Efast um svo margt í þessu lífi, efast um trúna! Þar er ég
svo sannarlega engin undantekning! Hvernig gengur þetta allt upp,
er þetta ekki bara rugl og e-ð kjánalegt og fleira.. Af hverju í
ósköpunum ætti Guð að hafa e-n áhuga á litlu mér??? Hmm.. ég sit
hérna inn í stofu og lít út um gluggann! Ég fer ósjálfrátt að hugsa
um ákv. einstakling sem tjáði sig eitt sinn á skólamóti upp í
Vatnaskógi.. ,,Þegar ég lít upp í himininn, sé stjörnurnar..
hvernig er hægt að efast..???" Ef éf lít út sé ég himininn, sólina
að setjast, vindin leika um beru trjágreinarnar.. grasið á
jörðinni, allt yndislega fólkið í þessum heimi.. oh hvað maður er
vitlaus og vanþakklátur!
Jæja núna er ég búin að ausa aðeins úr mér, það er góð
tilfinning! Þarf að halda áfram að læra.. og þarf að fara læra að
vera þakklát.. að vera réttlát, sanngjörn og trúföst! Það er ágætt
heimaverkefni, mun án efa bera meiri ávöxt en lærdómurinn fyrir
skólann!!
Ekki gleyma því hvað þið eruð yndisleg á allan hátt og ef e-r vogar
sér að gera lítið úr ykkur, lokið þá eyrunum, setjið vegg á milli
ykkar og haldið áfram! Þið eruð frábær og það er svo geggjað að
brosa! Þá mun heimurinn brosa á móti, I know it!
Gangið á Guðs vegum, því það er æði! Ég myndi ekki ljúga
Kv. Hilli
»
17.03.2006 12:59:16 / hildur_b
Jæja kannski kominn tími á eitt lítið blogg! Hmm.. Lára sagði
mér að blogga en ég veit ekki hvort að ég hafi nokkuð merkilegt frá
að segja! Ég er búin að vera pínu kvebbin undanfarna daga, eins og
90% þjóðarinnar, en ég er öll að hressast! Hehe..ég ætti núna að
vera í leikfimi að hlaupa tjarnarhringinn góða en nei.. hvað
haldiði?? Haldið ekki að ég hafi fengið þessar líka 2 RISA stóru
blöðrur á fæturna og það er VONT! Ég get nú bara ekki sagt
annað!
Úje.. það er komin fredag! Sem er alltaf ekkert nema gott mál
Átti að fara vinna smá uppí Smáralind en það er allt í rugli þarna
og ég þarf víst ekki að fara vinna! Namminamm.. það er ágætt!! Svo
er smá afmælisveisla í kvöld og ég held að það verði ekkert nema
gaman gaman gaman Jei.. ohh hvað mér finnst alltaf gaman í
afmælum!!Svo gaman að geta skrifað e-ð nýtt í reitinn þar sem
stendur aldur.. Gaman að geta skemmt sér yfir litlu hlutunum í
lífinu!! Svo þarf ég að vinna á laugardaginn, þarf náttúrulega að
fá mér smá pening fyrir Kenýju og fleira skemmtilegt sem maður er
að fara bralla!! Svo er KSS, reyndar svona sameiginlegur dagur
kristilegra unglingastarfa sem verður án efa muy bien!! Svo segir
mér hugur að það verði singstar á svæðinum og það er ekkert
annað en ógisslega töff skiluru! Hehe sem er dáldið fyndið þar sem
ég er gjörsamlega LAGLAUS en hverjum er ekki sama?!?!? Svo vonandi
fæ ég e-r gellur til mín og við getum gelgjast e-ð Á sunnudaginn
verða geggjaðir styrktartónleikar útaf krung-ferðinni góðu og
lítill fugl hvíslaði að mér að ég ætti að fara dansa þar! Það er
ágætt!! Endilega mættu og sýndu lit!
Jájá.. ég er bara ein heima og læti þessa dagana.. Gamla settið
stakk af til Rómar á fimmtudaginn sem þýðir það að litla prinsessan
þarf sjálf að síga hættuleg skref út í hinum stóra heimi! Ég er
náttúrulega algjör hálfviti að vera ekki komin á bíl en ég er
búin að vera ótrúlega dugleg að nýta mér almenningssamgöngur Rvk,
þ.e. strætó! Reyndar pínu pirruð yfir því að þeir skuli alltaf vera
að breyta leiðunum e-ð án þess að láta mig vita en hvaða máli
skipti ég svo sem?? Neinei ég er ekkert svo bitur, ég er mjög
þakklát fyrir leið 17 (f. hönd annarra!)
Heyrðu ég fór á þrusugóða bænastund á þriðjudaginn! Miklar og
góðar umræður sem mynduðust þar! Það var geggjað, gott að reyna
aðeins á heilann svona stöku sinnum!!
Já hvað er svo framundan.. Skólinn er alveg í essinu sínu,
reyndar aðeins farið að lægja sem er bara gott, hann var alveg að
missa sig þarna á tímabili! Var að fá próftöflu og viti menn, 12
stk próf í vor.. Það er náttúrulega ekkert nema gubb í poka!! Úff
hvað próf eru leiðó! Svo styttist óðum í skólarann! Auj það verður
SNILLD!! Vitiði ég kenni svo í brjósti um þá sem hafa ekki upplifað
að fara á skólamót! Ohh take my word u have to try it!! Það er
einmitt um páskan sem þýðir líka eitt annað
skemmtilegt...dudurumdumm FRÍ!! og svo aðeins seinna í apríl...
dudurudumm.. lítill engill í kjallarann!! Það verður svo yndislegt
að ég gæti grátið! Vá hvað það verður frábært að fá eitt lítið
sprikklandi! Hehe.. það verður geggjað!! Svo eftir próf er bara
komið sumar allt í einu.. Það verður áne efa fullt af
ágætlegehitum! Kenýja í ágúst, Vatnaskógur í júlí og svo að öllum
líkindum Ölver í júní! Verð minni en hestur í bænum en það reddast
hopefully!
Jæja núna þarf ég virkilega að að drífa mig í tíma, kemst ekki í
skónna mína þannig að ég þarf að ganga e-n veginn á þeim og það mun
taka mig 7 ár að komast í stofuna mína aftur! One time to go..

Until next time.. Hildur Burger!!
»
27.02.2006 15:03:09 / hildur_b
Jæja ég ætla bara að drífa í þessu.. Here goes
Fjögur störf sem ég hef unnið yfir ævina:
1. Blómastelpa í Blómaval
2. Sunnudagaskólakennari í Breiðholtskirkju
3. Þvottagull í Vatnaskógi
4. Foringi í Ölveri
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og
aftur:
1. Bridget Jones´s Diary
2. Notebook
3. My big fat greek wedding
4. Friends...má það??
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
1. Svíþjóð
2. Reykjavík
3. Seltjarnarnes
4. Uu... Vatnaskógur
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér
líkar:
1. Friends
2. Desperate Housewives
3. Sex and the city
4. Juding Amy
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Spánn
2. Portúgal
3. Holland
4. Svíþjóð
Fjórar bækur sem ég les oft í:
1. Biblían
2. Píkutorfan
3. Í dag
4. Dönsk-íslensk orðabók
Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á
núna:
1. Heima sofandi!
2. Svíþjóð
3. Í öðrum skóla
4. Með mínum heittelskaða..
Fjórar manneskjur sem ég skora á að gera þetta
eru:
1. Alfreð
2. Jóhanna
3. Lára
4. Guðrún Ósk
Þetta var nú gaman! Hafið það gott sætu
»
22.02.2006 22:45:35 / hildur_b
Jæja góðir hálsar! Það er nú orðið
svolítið langt síðan ég bloggaði seinast og þar sem ég fékk svo
fallega bón frá honum Aroni ákvað ég að skrifa hér örfá orð um
hvað hefur drifið á daga mína þennan mánuðinn!! Já heyrðu
helduru ekki að konan hafi orðið 18 ára 5. febrúrar!! Ég hélt
afmælisboð, meira að segja 2. Eitt fyrir vinina og svo var eitt
fyrir familiuna. Gaman að segja frá því að vinaboðið var ekki
haldið heima hjá mér, sökum ósættis við nágranna, heldur var það
haldið heima hjá yndislegasta fólki í heimi!! Verð í ævinlegri
þakkarskuld við þau!! Ohh takk takk takk! Já þar fékk ég
alltof mikið af gjöfum og þakka ég innilega fyrir það! Svo fékk
ég pening frá ættingjunum mínum þar sem ég er á fullu að safna
mér fyrir ferð til Kenýju í Afríku í sumar!! Ji minn hvað mig
hlakkar til! Það verður án efa ótrúlega magnað!! Verð í burtu
nánast allan ágúst og kem svo fersk og vonandi smá brún ef Guð
leyfir í skólann í 5. bekk MR (vonandi...:/)
Já svo er allt á fullu í skólanum,
fór reyndar í þrusugott vorfrí seinasta fimmtudag og föstudag sem
ég nýtti óspart til að innrétta smá hang-out handa mér. Svo var
árshátíðin á fimmtudaginn og kíktum við Elías þangað og var það
bara ágætt. Var reyndar pínu þreytt en það var samt alveg gaman.
Núna sé ég ekki fyrir endanum á verkefnum, fyrirlestrum og prófum í
skólanum, fólk er alveg að missa vitið í þessu öllu saman.. En það
er ágætt að alveg hálf önnin er búin, nokkrar vikur í páska og svo
eru eiginlega bara komin próf! Ohh hvað ég vona að ég nái öllum
þessum prófum, ég get ekki gert þetta allt aftur.. Hehe var t.d. að
gera fyrirlestur um skjái í tölvufræði sem ég flutti í gær, ég
komst að því að ég ætla ekki að leggja þetta fyrir mig!! Svona
tölvufræði er ekkert annað en e-ð annað tungumál!!! Hehe
rugl!!
Já svo er KSS í blóma eins og
alltaf!! Vorum að sýna leikrit sem hét Spegilmynd Guðs, sem var
byggt á kvikmyndinni Saved! Ég verð nú bara að segja að þetta kom
mér skemmtilega á óvart, leikarar stóðu sig óendanlega vel og eiga
allir sem komu að þessari sýningu stórt klapp á öxlina skilið fyrir
frábæra frammistöðu! Ég reyndi að leggja mitt af mörkum og var
sminka og það var bara stemmari!! Árshátíðin er bara eftir rúmlega
eina og hálfa viku, höldum upp á 60 ára afmæli félagsins á
laugardaginn og svo er hinn alræmdi aðalfundur 1.apríl þar sem er
meðal annars kosið í stjórn... Er ekki búin að ákveða hvað skal
gera í þeim málum.. En það er allt í vinnslu!! 1. apríl er einmitt
dáldið magnaður dagur.. Alræmdi gabbdagurinn mikil.. mana þig til
að gera e-ð allsvakalegt í tilefni af honum, Ég á 4 ára
fermingarafmæi og svo á Elías sæti afmæli!! Það er
gaman
Jáhá ég veit ekki hvað skal segja,
Silvía bara tók Júróvisjón! Hmm.. kom mikið á óvart!! Uuu.. Dagur
tók þetta hjá Samfylkingunni!! Mikið er ég feginn að fá smá ungt
blóð á þann stað! Ég bind miklar vonir við hann, þótt að ég sé nú
reyndar ekki alveg samfylkingarkona en ég held að hann eigi eftir
að geta komið upp sterkum vörnum gegn Vilhjálmi og hans liði í
Sjálfstæðisflokknum í borginni! Það verður spennandi!
Hey.. manstu eftir Írak??? Manstu
eftir þegar Bandaríkjamenn réðust inn í Afganistan?? Flóðbylgjan í
Indlandshafi? Ísrael-Palestína?? Fellibyljir á Mexíkóflóa? Alnæmi í
Afríku? Fuglaflensa..??? Oft er maður svo vitlaus.. eða allavega
ég.. Ég er í eilífu kapphlaupi við e-ð veraldlegt.. Að fá meira,
eignast meira, græðgin ofar öllu öðru!! Hvað er ég eiginlega að
pæla? Ég er svo ótrúlega heppin, ég á svo margt frábært, ég á
yndislega fjölskyldu og vini, æðislegan kærasta, ég á hús, föt,
mat, ég get gengið, talað, hlustað, elskað, hlegið, grátið og svo
ótrúlega margt í viðbót. Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að
þegar ég stíg út þá gæti ég stigið á jarðsprengju, báðir
foreldrarnir mínir eru á lífi, húsið mitt er ekki horfið út á
hafsjó og svona gæti ég endalaust haldið áfram. Krakkar, gleymum
þessu ekki!! Í alvöru.. lífið er of stutt.. Verum dugleg að biðja
fyrir þeim sem minna mega sín og þakka Guði fyrir hversu ótrúlega
gott við höfum það! Það er næstum fáránlegt!!
Æjj.. já þetta voru bara smá pælingar
hjá mér, vona að þið hafið náð að lesa niður allt!! Munið hvað þið
eruð óendanlega falleg og sama hvað þá eruð þið alltaf elskuð
óskilyrðisbundinni ást!! Er það ekki magnað?? Það er sko æðislegt!
Farið vel með ykkur, þið eruð æðisleg 
Kveðja Hildur
»
02.02.2006 10:53:38 / hildur_b
Já krakkar mínir gleðilegan febrúar! Finnst ykkur ekki dálítið
magnað að það sé kominn febrúar? Mér finnst jólin hafa verið í
gær.. en þau voru víst ekki í gær! Uu.. já ég á afmæli núna eftir
nokkra daga og er það alveg hreint ágætt!! Ekki á hverjum degi sem
maður á afmæli.. Ég er svolítið afmælisbarn.. ef það er hægt að
kalla það það! Ég er samt ekki að hugsa um þetta gjafastúss, þarf
engar gjafir, en málið er bara að það er svo gaman að nýta
tækifærið að hitta góða fólkið í kringum mig, gefa þeim e-ð gott og
hafa gaman! Hehe.. ágætt! Já heyrðu ég fékk fyrstu afmælisgjöfina
mína um daginn frá hinum ágæta banka sem nefnir sig við Ísland..
það var e-r bæklingur um skyldur og annað skemmtilegt dót sem
fylgir því að lögráða og með fylgdi... dadaradamm.. kökumix frá
Betty Crocker!! What??? Ég ætla rétt að vona að þetta voru ekki
skilaboð um að ég eigi að hætta í skóla, stofna fjölskyldu og fara
baka og þrífa allan liðlangan daginn!! Nehh.. ég held að það sé
dáldið langsótt!
Já heyriði ég var skoðanakönnun í gangi um jafnrétti og hér eru
niðurstöðurnar.. sem komu mér kannski ekkert rosalega mikið á óvart
en allavega here goes..
Já þannig var það nú!!
En já bæjarstjórnakosningar að fara á fullt!! Mér finnst nú pínu
gaman að ég geti farið að kjósa! En allavega auglýsingabæklingar
herja á mann eins og flugur.. ég hef nú aldrei verið hlynnt öllu
þessu peningastússi í kringum kosningar, ekki af neinu tagi. Málið
er samt að þetta hefur áhrif og eins og sýndi sig um daginn í
alþingiskosningum *hóst-framsóknarflokkurinn-hóst* að þeir sem
eyddu mestum peningum í auglýsingar og e-r hollywood-eftirhermur
juku mest við fylgið sitt! Er það ekki e-ð bogið? Æj mér finnst það
hálf hallærislegt en það er bara ég! Það hefði verið hægt að
nota þessa peninga í svo margt gott en nei.. Það var ekki
möguleiki! En svona er lífið!
Já það er búið að vera mikið að gera, bara eins og alltaf en það
er ágætt. Eins og seinasta helgi var massíf, en það sem
ég var að gera var yfirleitt ekki leiðinlegt þannig að það var
í góðu! Hmm.. framundan er bara róleg helgi sem er yndislegt! Bara
að fara afmælast á föstudaginn og sunnudaginn og ég er ekki að fara
vinna, ekki að skipuleggja e-ð mikið og
annað skemmtilegt!
Framundan er ýmislegt skemmtilegt.. árshátíðir bæði í skólanum
og KSS sem er gaman!! Svo er að koma vetrarfrí.. og
já!
Heyrðu þetta er nú bara að vera komið gott held
ég! En hafið það gott lömbin mín og farið vel með ykkur!
Þið eruð svo ótrúlega falleg
Peace
Hildur
»
23.01.2006 15:08:24 / hildur_b
Dídírí! Jæja.. ekki mikið sem ég hef frá að segja að svo stöddu
nema það að mikið annríki er að herja á mig þessa dagana! Sem er
svo sem allt í lagi, betra en að láta sér leiðast! Allavegana.. mig
langaði bara að setja inná tengil að síðu sem að bróðir minn,
kærastan hans og væntanleg bróðurdóttir mín eru með! Ohh.. þau eru
svo mikil krútt og ég væri nú að ljúga ef ég segði að mig hlakkaði
ekki pínu til!! Það er gaman að þessu!! Já annars ætti ég nú að
vera læra.. er að fara hlaupa á smá fund.. þarf svo að klára e-a
skýrslu og munnlegt í ensku og dönsku.. og e-ð meira rugl!! En
þetta reddast allt saman ég er alveg viss um það!
Æj já.. hafið það gott krakkar mínir og eins og gott slagorð
gefur til kynna.."Búið til ást, ekki stríð!"
Later
»
10.01.2006 01:16:59 / hildur_b
Já er ekki bara ágætt að buna smá rugli útúr sér í tilefni af
því að ég á auðvitað að vera farin að sofa og ekki vera að
svefngalsast inni hjá mér!! En það er of seint að gera e-ð í því
máli á þessari stundu!!
UUU.. ekki mikið merkilegt þó að segja! Byrjaði í skólanum aftur
4. jan eftir reyndar yndislegt jólafrí! Klárlega með bestu jólum
sem ég upplifað Sem er bara nokkuð gott verð ég að segja! Ég
náði að hvíla mig vel, ég reyndar byrjaði á því að vinna soldið
mikið strax eftir prófin til og með aðfangadag.. var by the way að
vinna til 2 þann dag, það var ágætt bara pínu skrýtið af því að
maður er vanur að liggja bara í leti þann dag! Anyways.. svo
skundaði maður í nokkur jólaboð, hafa reyndar aldrei verið jafnmörg
og þetta árið, fór einmitt í 3 á jóladag! Geri aðrir betur Það
var æði og mikil tilbreyting verð ég að segja! Svo hélt ég sjálf
smá jólaglaðning handa vinum og það var ótrúlega gaman! Var með
svuntu og alles! Good times, good times.. Svo var auðvitað rúsínan
í pylsuendanum (mér finnst þetta frekar ógeðfellt orðatæki ) að ég
fékk að vera með Elíasi alveg fullt Það var svo sannarlega
gaman!
En já nú er kaldur veruleikinn tekinn við, jólaskrautið í
geymslu og ekkert nema yndislegar skólabækur á skrifborðinu! Úff..
ég væri nú að ljúga ef ég segði að mér fyndist þetta spennandi.. en
þetta er allt í lagi og auðvitað er ég mjög þakklát fyrir að geta
yfir höfuð gengið í skóla! Það eru svo sannarlega ekki allir jafn
heppnir og ég með það!!!!! Ekki gleyma því Hildur... 
Heyrðu woow ég verð að segja ykkur eitt! Á laugardaginn fór á
tónleikanna í Laugardalshöll gegn stóriðjuframkvæmdum! Það var sko
gaman! Það komu fullt af tónlistarmönnum fram, t.d. Björk,
Sigurrós, Damien Rice, Damon Albarn, Ham, Egó, Magga Stína, Múgison
og fleiri! Það var klikkun! Uppáhaldið mitt var án efa Damien!
'Uff.. það var svoooo ótrúlega flott að þið trúið því ekki! Ef þið
hafið ekki hlustað á hann þá verðiði að drífa ykkur í því því þetta
er svo mikil snilld! Ojá! Mér fannst eila fyrri hluti tónleikanna
betri en hver dæmir fyrir sig um það mál!
Svo er nýársnámskeið næstu helgi upp í Ölver og það verður
vonandi ekkert nema gaman! Ég er víst ein af þeim sem eru að
skipuleggja og það er bara frábært! Alltof gott að geta hjálpað
eitthvað Já svo er konan bara að verða 18 ára..bíddu nú aðeins
hæg.. núna ertu að rugla! Hver er að verða 18 ára???Uuu.. ég.. Ji
minn en það er frábært því núna get ég loksins kosið sem er ekkert
nema gott mál!! Það eru einmitt að fara koma bæjarstjórnarkosningar
á Nesinu góða! Hmmm.. hverja skyldi Hildur kjósa????? Ég veit
allavega hverja hún ætlar ekki að kjós!!!!
Jæja þá er bara að skella sér í smá meiri galsa og við hittumst
heil! Þið eruð frábær og Guð veri með ykkur
Kv. Hildur græningi
Ps. fór í Body Jam í Baðhúsinu áðan! Mikið svakalega var það
gaman! Ég stóð alveg á mávanum (hehe.. fattiði ..hehe að standa á
önd.. standa á mávi.. )
»
28.12.2005 15:58:53 / hildur_b
Gleðileg jól elskurnar mínar!! Vona að þið hafið það alveg
ótrúlega gott um jólin og vonandi verður næsta ár betra en það sem
er að fara klárast! Af minni hálfu sé ég bara góða tíma framundan,
mjög góða og ég vona að við getum öll tekið á móti nýju ári með
bjartsýni og bros í hjarta! Það er allavega mín ósk til ykkar!
Njótið þess í botn að vera í fríi, allavega frá skólanum, og að
vera með fjölskyldunni, vinum og borða góðan mat og allt þetta
frábæra sem tilheyrir jólunum!
Ég ætla ekkert að láta þetta vera lengra að sinni, ég ætla bara
að minna ykkur á eitt sem ég hef sagt áður... að njóta! Njóta þess
bara að vera á lífi! Lífið fær nýja merkingu... og reynið að lifi
fyrir daginn í dag, ekki það sem er liðið eða það sem ekki er
komið! Göngum veginn Hans og vitið til, lífið er fallegt!
ok.. núna skal ég hætta! ætla að fara gera e-ð af viti! Þið eruð
frábær, ekki gleyma því
Kv. Hildur
»
13.12.2005 13:05:24 / hildur_b
Já einmitt!! Getum við aðeins rætt eitt mál hérna?? Ég var í
makindum mínum að skoða póstinn minn og ákvað að kíkja aðeins inn á
þessa síðu mína.. og hvað er það sem ég rek fyrst augun í... 2
DAGAR Í JÓLAFRÍÍÍÍÍÍÍI!!!!!!!!!!!!!!! Ég er svo glöð að ég gæti
hoppað hæð mína af gleði Ég er búin að fara í 7 próf sem hafa
bara gengið svona upp og ofan.. Var í ólesinni stæ. í dag og mér
gekk ótrúlega illa!! Ohh ég er dálítið pirruð ég get ekki sagt
annað!!! En maður getur ekki breytt því sem liðið er þannig að
lífið heldur áfram! Enska á morgun og svo síðasta prófið á
fimmtudaginn!! Vá hvað ég hef beðið eftir því lengi að komast í
frí! Er reyndar að fara vinna strax á fimmtudaginn fullt en allt
sem er ekki skóli er frí í mínum augum!
Það er nú ekki mikið að segja frá úr lífi mínu þessa dagana nema
læri, læri, læri(en þó ekki hangilæri ). Fór í KSS á
laugardaginn og það var yndislegt! Ég hafði ekki séð alla
ljúflingana mína í alllllltttoooooof langan tíma og það var frábært
að hitta gellurnar mínar og annað eðal fólk! Ohh ég þoli ekki það
við prófin, að maður verður svo andfélagslegur!! En brátt líður að
lokum og það verður pjúra snilld
Heyrðu bara Unnur Birna tók miss world! Hehehe.. til
hamingju með það!! Þótt að ég sé nú ekki mest fylgjandi
fegurðarsamkeppnum þá er þetta samt sem áður pínu magnað! Hehe það
er reyndar dáldið fyndið, Íslendingar eru haldnir svo mikilli
þjóðernissýki að þeir hoppa hæð sína af gleði í hvert sinn sem
þetta vækislega land okkar kemst á kortin, nánast sama fyrir hvað
það er! En það er bara krúttlegt Svo er þetta alveg hryllilegt
með þessa sprengingu í Englandi! Ussuss.. ekki gott mál! Biðjum
fyrir því .. sem og öllu öðru.. ekki gleyma að biðja!! Ég veit að
það vill gleymast alltof oft, sérstaklega í miklu stressi, t.d. í
prófum en þá er ennþá meiri ástæða til að biðja, biðja um
styrk, biðja um kraft og ég get lofað ykkur því að það hefur
áhrif!! Ohh.. Guð er svo yndislegur Pælið í því hvað hann hefur
gefið okkur margt frábært... eins og t.d. vinir.. vá ég hef verið
svo ótrúlega heppin að hafa fengið að kynnast svona mikið af
frábæru fólki á lífsleiðinni, þótt að hún sé nú alveg ótrúlega
stutt, en samt.. ég hef fengið að njóta þvílíkra forréttinda!! Vá
það er stórkostlegt! Mér þykir svo ótrúlega vænt um ykkur ef þið
vissuð það ekki! Og vinir eru svo sannarlega ekki það eina sem Guð
hefur gefið mér.. vá það er endalaust margt frábært sem hann hefur
blessað mig með!
Ég er á fullu að lesa bókina Í dag sem ég skrifaði einmitt smá
í.. sumar hugleiðingarnar eru svo ótrúlega fallegar í þessari bók!
Vá ég er ekki frá því að ég hafi fellt tár yfir hugleiðingunni í
gær.. var svo ótrúlega persónuleg, hjartnæm og full af von! 
Jæja ég veit ekki hvað skal segja.. Ég er að spá í að fara demba
mér í lærdóminn, reyna að klára þetta sem fyrst og geta svo hvílt
mig aðeins. Ohh og svo koma jólin.. það er yndislegt Ég elska
jólin, fer vonandi að kaupa jólatré á morgun eða á fimmtudaginn og
ætla svo að drífa í því að skreyta það! við ákváðum að skreyta það
snemma þessi jólin af því að það er svo yndislegt að hafa það og
grenilyktina og synd að njóta þess aðeins í smá stund..
Ég ætla að enda þetta á smá til ykkar.. það er þetta með að
njóta! Njóta augnabliksins, njóta þess að geta staðið í fæturna,
njóta þess að geta tjáð sig, njóta þess að vera elskuð af Guði og
njóta þess að vera dýrmæt perla í augum Guðs! Hafið það frábært og
farið vel með ykkur! Þið eruð nefnilega svoooo dýrmæt
Kv. Hildur
"Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega
skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel."
Sálm.139:14
»
24.11.2005 11:17:13 / hildur_b
Já það er satt.. í dag er fimmtudagurinn 24. nóvember og aðeins
einn mánuður í aðfangadag.. sem er auðvitað ekkert nema gott! Hver
elskar ekki jólin spyr ég bara.. ég held að ég hafi bara ekki
nokkurn tímann hitt e-n sem ekki hlakkar til jólanna!! Hvað er það
við jólin sem allir hlakka svona til.. er það fríið.. reyndar eru
Íslendingar vinnualkar þannig að margir fá ekkert almennilegt frí..
eru það pakkarnir og allt nammið og allur maturinn.. eða er það
kannski bara að þetta er hátíð ljóss og friðar, fólk getur eytt
tíma með fjölskyldunni og hugleitt hvers vegna við höldum upp á
fæðingu frelsarans Ég vona að seinasti liðurinn eigi hug flestra
á þessari yndislegu hátíð! Ég var einmitt að pæla í þessu, hver
væri mín ástæða fyrir þessari tilhlökkun sem er í raun að byggjast
upp á 11 mánuðum!! Ég elska t.d. aðfangadag, þegar ég hitti
æðislegu fjölskylduna mína sem ég hitti alltof sjaldan en elska í
tætlur. Allir eru svo glaðir og allt er svo gaman.. Svo er líka
frábært að fara á hinn vænginn og hitta fjölsk. hinum megin.. Núna
finnst mér það einstaklega gaman að því að það er komin lítill
æðibiti sem er ekkert nema snilld að leika sér við Að vera heima
með gamla settinu, lesa góða bók, horfa á jólamyndir, pakka inn
pökkum, setja upp jólaseríur, horfa á pabba setja toppinn á
jólatréð, lesa jólaguðspjallið, baka piparkökur, gefa vinum sínum
jólagjafir, gefa í e-ð gott málefni, hlusta á jólatónlist.. vá
þetta tekur engan enda!! Það er komið á hreint ég er forfallið
jólabarn! Og er bara stollt af því! Við eigum að halda jólin
hátíðleg, ef að Guð hefði ekki sent son sinn í þennan heim hefði
hann ekki dáið fyrir okkur og við ekki eignast eilíft líf með
honum! Það er sko nóg ástæða til gleðast á þessum yndislegu tímum
.. Það eru samt svo margir sem geta ekki haldið almennileg jól..
lítil börn sem fá engan jólapakka, líður illa á jólunum og hlakkar
mest til að þau séu búin og fl. Maður má ekki gleyma þessu fólki í
allri gleðinni! Muna að biðja fyrir þessu öllu.. og verkefninu jól
í skókassa sem fyrir ykkur sem ekki vitið það var það verkefni sem
k-ið stóð fyrir að safna jólagjöfum handa fátækum í Úkraínu..
minnir mig..:/ og vona að það allt gangi vel
Jamm.. hehe.. stutt í jólin.. stutt í PRÓF! Ekkert meira um það
mál að sinni..
Já heyrðu á laugardaginn fór í ammæli eftir káarann.. hjá henni
Kristjönu sætu Það var mjög fínt og Stjáni alltaf jafn sæt og
æðisleg Til hamingju með daginn sæta Svo varð amma mín 70 ára á
sunnudaginn og hún hélt svona konuboð handa fullt fullt af konum!!
Ég mætti galvösk á staðinn og hjálpaði mömmu og Ingu sem voru btw.
að sjá um ALLT!! Vá hvað ég vona að ég erfi e-ð að snilldarmennsku
þeirra í eldhúsinu Hehe þessar konur voru ógisslega fyndnar!
Héldu nokkur atriði og stemmarinn var í hámarki Frændi minn kom
með smá tónlistaratriði og var það æði Svo er bara búinn að vera
lærdómur og gleði sem ég sé ekki fyrir endann á.. Í gær bauð ég
svo Hugrúnu og Bíbí sæta á ísl.dansfl. og það var ótrúlega gaman!
Vá það var æði að hitta þær eftir alltof langan tíma og spjalla
saman! Sýningin var líka frábær!! *klappklapp* Ekki væri það
leiðinlegt að hafa lifibrauð af því að dansa svona.. þótt að þetta
sé nú ekki vel borgaðasta starf í heiminum.. en þetta væri svo
gaman að það myndi ekki skipta neinu máli!! Það er draumur.. Svo
er bara nokkuð róleg helgi framundan! Loksins! Mikið er ég glöð..
get sofið út báða daga og bara lær og annað skemmtilegt!! Förum á
skauta eftir fund á laugardaginn og er það oftast ekkert nema
gaman!! Endilega komið Heyrðu já.. svo var að koma út bók sem
heitir í dag.. þetta er bók sem að 366 Ísl. skrifuðu í.. ein
hugleiðing fyrir hvern dag.. og undirritaður er víst með í þessu
dæmi!! Voða gaman.. þetta er merkileg bók, alls kyns fólk sem
skrifaði þannig að endilega gluggið í hana ef þið hafið kost á
Svo er það bara blómarinn um jólin býst ég við.. vona að ég verið
samt ekki að vinna of mikið..Langar að gera annað um jólin en að
vinna á milljón.. Smá frí er kærkomið..
Jæja elskurnar mínar.. núna þarf ég að fara en endilega takið
þátt í könnunni.. var að setja hana inn.. Verður gaman að sjá
hvernig hún fer.. Hehe.. Þið eruð sæt:* og hafið það æðislegt!
Gangi ykkur vel í prófunum og munið að Guð er alltaf með ykkur,
sama hvað bjátar á
Kv. Hildur
Ps. Íris er best
»
17.11.2005 11:09:52 / hildur_b
Já góðan daginn góðir hálsar! Ég er alveg á því að séu orðnir
fastir liðir að blogga smá í tölvufræði.. Hehe.. og þar sem það er
kominn fimmtudagur er einmitt kominn tími til að skella einu stykki
rugli hingað inná! Allavega.. Um seinustu helgi skundaði KSS eða
allavega nokkrir þaðan.. á Hvammstanga!! Mikið ótrúlega var það
gaman! Fórum á föstudeginum og keyrðum í smá brjáluðu veðri.. en
sem betur fer passaði Guð vel upp á sína og allt fór á besta veg!!
Vorum með smá poppmessu þegar við komum og mætingin fór fram úr
öllum vonum..  Hehe.. svo kíktum við í sund.. brrr.. það var
dálítið kalt en sundlaugin var alveg til fyrirmyndar.. *hóst* heiti
potturinn!!  Heyrðu svo fórum í ótrúlega fallega kirkju sem er
rétt fyrir utan bæinn og vá.. hún var æðisleg.. Ég er soldið veik
fyrir svona litlum, gömlum sveitakirkjum! Það var æðislegt! Svo
gistum við um nóttina og skunduðum svo heim til að ná KSS fundi!
Þetta var æðislega ferð og allt fólkið var frábært  Svo hélt maður
saumarann á sunnudaginn og það var snilldin eina! Ótrúlega var
gaman að hitta gellurnar sínar og rifja upp gamla og góða tíma! Vá
ég hafði ekki séð þær í alltof langan tíma og já.. þetta var
snilld! Vonandi þarf ekki að líða svona langt þangað til ég sé þær
næst þessar elskur  Lof jú gæs  Hehe.. svo ætlar maður að hitta
Hugrúnu og Bíbí og fara á ísl. dansfl. Það verður æðislegt, hef
ekki hitt þær almennilega í 7 ár.. hehe.. fyndið!  Djóný sæta átti
afmæli á þriðjudaginn.. til hamingju ástin  Kíktum aðeins til
hennar.. Spánar-crewið ógurlega  Hehe.. soldið gaman! Ahh.. hún
varð 19 ára.. sem þýðir aðeins eitt.. að við erum að eldast.. jiii
ég held að ég sé komin með e-s konar form af gráa fiðringnum..
hehe.. kannski ekki  Svo á Stjáni ammæli á sunnudaginn og það
verður án efa snilld! Gaman gaman! Já einmitt.. skólinn, eins og
alltaf, á fullu og nóg að gera.. Prófin fara nú bráðum að byrja.. 
Æjj.. nenni ekki að vera svekkja mig á því.. maður bara gerir sitt
besta.. vonandi nær öllu og nýtur þess svo að fara í jólarann!! Vá
hvað mig hlakkar sjúklega mikið til að fara í frí!! Jibbí jei!!
Jæja.. ég hef lítið annað að segja á þessari stundu nema bara að
klæða sig vel svo að maður fái ekki lungnabólgu og fleira slæmt!!
Það er mikill ófriður og leiðindi í heiminum í dag.. verum dugleg
að biðja fyrir því.. við höfum það svo gott.. við megum ekki gleyma
því.. Komum fram við aðra eins og við viljum að það sé komið fram
við okkur!! Þið eruð frábær í alla staði og ótrúlega falleg  Adiós
Kv. Hildur Ps. It´s nice to be important but it is more important
to be nice..
»
Síður: 1 2 3
|
|